- K
- A
- B
English:
In May 2026, a group of about 30 university students from our school (University of Iceland) will travel to Madagascar for a two-week research project, working side by side with 6 Malagasy university students. This partnership is about more than research—it’s about equity, opportunity, and building futures.
Why this matters:
Madagascar is one of the poorest countries in the world:
- Extreme poverty: Over 80% live on less than $2.15 a day.
- Unsafe water: Nearly half the population lacks access to safe drinking water — only about 56% have it, leaving ~44–45% without.
- Little access to technology: Computers are rare, making it hard for students to gain digital skills needed for modern careers.
- Multidimensional poverty: Over 70% of people live in multidimensional poverty.
For Malagasy students, these realities make education a battle against odds most of us can hardly imagine. Private computers are almost unheard of. Study materials are scarce. Even reliable light to study at night can’t be taken for granted.
Our goal:
Our main goal is to support the participation of the Malagasy students in our joint project, many of which face challenges accessing essential resources for their studies and daily lives. Many people there have limited access to basic necessities, and a lot of support can be provided for little cost. With your help, all participation costs for our 6 Malagasy partners will be covered:
- Travel, lodging, and meals
- Research materials and supplies
- Each student will receive a laptop computer—a genuine life-changing tool in a country where access to technology is a luxury.
This isn’t just a project. It’s a chance to equip talented young people with the resources, skills, and confidence to shape their communities and future careers.
FAQ - Why does the organizer’s location say Ireland (County Cavan)?
GoFundMe doesn’t allow fundraisers to be created in Iceland. A trusted family member of our team leader, based in Ireland, is hosting the fundraiser. All funds will be sent directly to our team in Iceland and used for the project in Madagascar.
Íslenska:
Í maí 2026 mun hópur u.þ.b. 30 háskólanema við Háskóla Íslands ferðast til Madagaskar í tveggja vikna rannsóknarverkefni í samstarfi við sex háskólanema frá Madagaskar. Þetta samstarf er hluti af áframhaldandi tengslum milli Háskóla Íslands og staðbundins háskóla á Madagaskar. Við erum mjög spennt að vinna saman, læra hvert af öðru og vonandi efla rannsóknar starfsemi í Madagaskar.
Aðalmarkmið okkar er að styðja þátttöku malagössku nemendanna í sameiginlega verkefninu okkar. Flest þeirra glíma við miklar áskoranir þegar kemur að nauðsynlegum úrræðum varðandi bæði nám sitt og daglegt líf. Madagaskar er eitt fátækasta land heims, þar sem margir búa við takmarkað aðgengi að nauðsynjum, og hægt er að veita mikla aðstoð fyrir lítinn pening.
Með þinni hjálp munu nemendurnir frá Madagaskar geta tekið þátt í verkefninu að kostnaðarlausu:
- Allur þátttökukostnaður
- Ferðalög
- Gisting
- Máltíðir
- Rannsóknargögn
Þar að auki munum við útvega þeim önnur hjálpartæki og efni fyrir námið þeirra, og – sem er sérstaklega mikilvægt – hver og einn nemandi mun fá fartölvu. Þetta mun breyta öllu fyrir þessa nemendur þar sem flestir þeirra hafa, í besta falli, takmarkaðan aðgang að tölvum í skólanum: eigin tölvur eru afar sjaldgæfar og því afar dýrmætar fyrir nám þeirra og framtíð.
Með því að styðja þessa söfnun ert þú ekki aðeins að hjálpa okkur að ljúka rannsóknarverkefni, þú ert að fjárfesta í framtíð hæfileikaríkra nemenda sem eru staðráðnir í að læra, vaxa og hafa jákvæð áhrif í samfélögum sínum. Við trúum því að þessi reynsla muni veita malagössku samstarfsaðilum okkar dýrmæta hæfni og reynslu sem nýtist þeim bæði í námi og framtíðarstarfi.
Takk fyrir að hjálpa okkur að byggja upp varanleg tengsl og skapa raunverulegar breytingar.
ATHUGIÐ! Af hverju stendur að skipuleggjandinn sé staðsettur á Írlandi? GoFundMe býður hvorki upp á fjáröflun né móttöku framlaga á Íslandi. Vegna þess mun traustur fjölskyldumeðlimur sem er búsettur á Írlandi aðstoða okkur við að taka á móti framlögunum en nemendahópurinn á Íslandi mun halda utan um fjáröflunina sjálfa. Allir fjármunir verða sendir beint til hópsins okkar á Íslandi og notaðir fyrir verkefnið í Madagaskar.




